blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

12.19.2004

Miðbæjarrölt og bli

Ég las seinni bók BJ fyrir nokkrum árum og fannst það endalaust fyndið hvernig hún afgreiddi jólakortaskriftirnar. Tók meðvitaða ákvörðun um að þetta væri eitthvað sem ég ætlaði einhvern timana að gera. Finnst nefnilega afskaplega leiðilegt að skrifa sterialseruð jólakort og kvitta fyrir. Andin kom svo yfir mig á föstudagskvöld J Afgreiddi öll kortin á einu bretti og límdi þau aftur svona til öryggis. Þannig elsku vinir þig fáið einsktök jólakort frá mér þetta árið... og kanski það sem eftir er því mér fannst þetta hreint ljómandi skemmitlegt. Þar sem ég var ekki búin að kaupa eina einustu jólagjöf var laugardagurinn tekin frá og stefnan tekin á laugarveginn. Mjög kætandi og skemmtilegt. Dró Rúnar búð úr búð. Hann var einskaklega þolimóður og ég stend í þeirri trú að hann hafi haft jafn gaman af þessu eins og ég :P ! Enduðum miðbæjarosmósuna á Sólon. Hitti gamla manninn þar... skrtytið.. hef ekki séð hann lengi...... en miðbæjarröltið var mjög ljúft.. gerðum svo þau regin mistök að detta í hug að fara í kringlunna!!!! Eftir um það bil 8 min þar var búið að sjúga allan kraft úr okkur og flyttum okkur út. Algerlega með ofnæmi fyrir þessum stað á þessum árstíma en fer samt alltaf þangað aftur og aftur... djöblin! Klæddi mig svo upp, setti glimmer á mig og skellti refs-kvikindinu utanum hálsin á mér... hrikaleg skvísa.. og skellit mér í bæinn um kvöldið. Ofsalega ljúft kvöld. Sunnudagurinn var fyrsti svona jóla-tilhlökkunar dagurinn sem ég finn fyrir þessi jól. Við keyptum jólatréið og settum það upp, bökuðum smákökur og vorum að jólast í allan daginn og fram á kvöld. Rosalega fegin að þetta var allt gert í rólegheitunum og ekkert stress eða panikk yfir hlutum sem skipta akkurat engu máli. Ég er mjög sátt.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home